
Sorphirða
Losunardagatal fyrir hvern bæjarkjarna, áminning kvöldið áður, flokkunarleiðbeiningar.
Þjónustuapp fyrir íslensk sveitarfélög
Sorphirða, sundlaugar, strætó, viðburðir og ábendingar íbúa. Eitt app, í nafni sveitarfélagsins, í símanum hjá íbúum.
Í notkun í Fjarðabyggð síðan í apríl 2026. Um 1.200 niðurhöl í 5.200 manna sveitarfélagi.

Engin loforð, bara það sem íbúar Fjarðabyggðar nota í hverri viku. Hvert sveitarfélag velur sína þjónustu og sitt efni.

Losunardagatal fyrir hvern bæjarkjarna, áminning kvöldið áður, flokkunarleiðbeiningar.

Opnunartímar, niðurtalning í næstu opnun, frídagar og sumartímar.

Opnunartímar, tengiliðir og leit í safnkosti.

Íbúi velur brottfararstað og áfangastað og fær næstu ferðir og leiðakort.

Það sem er fram undan í sveitarfélaginu, sótt af vef sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið birtir skilaboð efst í appinu, til dæmis röskun á sorphirðu, án milliliða.
Íbúar velja bæjarkjarna og efni og fá tilkynningar beint í símann.
Íslenska, enska og pólska, ekki vélþýðing heldur skrifað viðmót.
Íbúi tilkynnir holu, ljósastaur eða rusl með mynd og staðsetningu. Sveitarfélagið svarar í kerfinu. Sjá ábendingakerfið.

2.400 heimsóknir í hverjum mánuði, hálfu ári eftir útgáfu.
Leggja til merki og liti, staðfesta opnunartíma og tímatöflur, og taka eina ákvörðun í bæjarráði. Markaðsdeildin sá um allt annað: hönnun, smíði, app store reikninga, útgáfu, hýsingu og rekstur.

Við vildum að íbúar þyrftu ekki að leita að því hvenær tunnan er tæmd eða sundlaugin opin, heldur hefðu það í símanum. Hálfu ári eftir útgáfu er appið komið á fleiri en annað hvert heimili í Fjarðabyggð og notkunin heldur sér. Það segir mér að þetta var rétt ákvörðun.
Í Fjarðabyggð viljum við nýta stafrænar lausnir til að einfalda daglegt líf íbúa og bæta aðgengi að þjónustu og upplýsingum. Fjarðabyggðarappið er mikilvægt skref í þeirri vegferð og góðar viðtökur sýna að við erum á réttri leið. Samstarfið við Markaðsdeildina hefur verið afar gott, einkennst af fagmennsku, frumkvæði, liprum samskiptum og skjótum viðbrögðum. Opið og skapandi samtal hefur jafnframt leitt af sér nýjar hugmyndir og lausnir sem komist hafa hratt af hugmyndastigi í framkvæmd. Við sjáum mikil tækifæri til frekari þróunar á appinu og þannig auka miðlun og þjónustu til íbúa Fjarðabyggðar.
Jóna Árný Þórðardóttirbæjarstjóri FjarðabyggðarFjarðabyggðarappið hefur reynst okkur vel við að miðla upplýsingum til íbúa og við höfum fundið fyrir ánægju með það. Þar má á einfaldan og fljótlegan hátt finna næstu strætóferð, sjá hvenær sorpið verður sótt eða athuga opnunartíma. Við höfum sérstaklega orðið vör við að ungt fólk nýtir sér strætóupplýsingarnar. Appið hefur einnig reynst mikilvægur farvegur fyrir tilkynningar um tímabundnar lokanir, til dæmis vegna veðurs. Næsta skref er nýtt ábendingakerfi sem auðveldar okkur að fylgja ábendingum eftir og upplýsa íbúa þegar þeim hefur verið sinnt.
Haraldur Líndal Haraldssonupplýsingafulltrúi FjarðabyggðarÁbendingar íbúa eru ekki aukaatriði í appinu. Þær eru verkfæri fyrir stjórnsýsluna: eitt kort, ein yfirsýn, ekkert sem týnist í tölvupósti.
Íbúi sendir ábendingu úr appinu: staður á korti, flokkur, lýsing, mynd. Engin innskráning. Fær málsnúmer og staðfestingu.
Ábendingin birtist á stjórnborði starfsfólks um leið, með mynd, stað og lýsingu.
Starfsmaður yfirfer áður en nokkuð verður opinbert: lagar orðalag, felur mynd ef þarf. Frumritið geymist alltaf.
Úthlutað á verkstjóra eða starfsmann. Fimm stöður: Ný, Í bið, Í vinnslu, Leyst, Á ekki við.
Starfsfólk á vettvangi sér sín verkefni í símanum með mynd og korti og merkir lokið. Sér aldrei nafn eða netfang íbúans.
Íbúinn fær svar í tölvupósti og opinbert svar sveitarfélagsins birtist á kortinu. Aðrir íbúar sjá að málið er í vinnslu og taka undir í stað þess að senda aftur.
Innra spjall á hverri ábendingu, tengdar ábendingar fá eitt svar, hlutverk með mismunandi aðgangi (stjórnandi, móttaka, verkstjóri, starfsmaður), allar aðgerðir skráðar.
Færri símtöl í þjónustuver, engin tvítalning, yfirsýn yfir hvað er opið og hve lengi.
Hvert sveitarfélag fær sitt eigið app: eigið nafn í App Store og Google Play, eigin litir og merki, eigið efni, eigin gögn. Ekki sameiginlegur vettvangur með nafni sveitarfélagsins límdu á.
Við sýnum appið og heyrum hvað skiptir ykkur máli.
Innan viku: appið í ykkar litum með ykkar þjónustu, til að sýna bæjarráði. Við mætum á kynninguna ef þið viljið.
Samstarfssamningur og vinnslusamningur, sömu skjöl og Fjarðabyggð skrifaði undir. Umfang og verð sniðin að sveitarfélaginu.
Gagnaöflun með ykkur (opnunartímar, tímatöflur, sorpdagatal), hönnun, útgáfa í báðum verslunum, kynning fyrir íbúa. Sex til átta vikur frá undirritun.
Í flestum tilvikum rúmast verkefnið innan heimilda til beinna innkaupa án verðfyrirspurnar.
Merki og litir, tengiliður sem svarar spurningum um efni, samtals tveir til þrír klukkutímar starfsmanns, og ein ákvörðun í bæjarráði.
Við rekum appið, uppfærum það og vöktum. Þið sendið tilkynningar og svarið ábendingum úr stjórnborðinu. Reglulegir samráðsfundir.
Sveitarfélög kaupa ekki app, þau kaupa ábyrgð. Þetta er það sem fylgir.
Gagnagrunnur og bakendi hjá Supabase á Írlandi, vefhýsing í ESB, tölvupóstur í Frakklandi, ýtitilkynningar í ESB. Allt skráð í samningi.
Byggður á sniðmáti Persónuverndar, yfirfarinn af persónuverndarfulltrúa sveitarfélags. Lágmörkun persónuupplýsinga: engin innskráning íbúa, engar kennitölur, engin rakning.
Öryggisstefna, áhættumat, neyðaráætlun og samantekt gagnvart útvistunarstefnu, tilbúin fyrir ykkar yfirferð.
Allt sem verður til í kerfinu er eign sveitarfélagsins. Sex mánaða uppsagnarfrestur og gagnaskil við samningslok.
Appið er ókeypis fyrir íbúa og safnar engu sem það þarf ekki.
Öpp opinberra aðila þurfa að uppfylla WCAG 2.1 AA fyrir 1. janúar 2028 (vefir 1. janúar 2027). Appið er byggt með það viðmið frá grunni og aðgengisyfirlýsing fylgir.
Grunnurinn er það sem Fjarðabyggð notar. Þetta er það sem við höfum hannað eða smíðað að hluta og bætum við eftir óskum hvers sveitarfélags.
Staðbundnar viðvaranir um veður, ófærð og rýmingu.
Í boði eftir samkomulagiLokanir, matseðlar, dagatöl.
Í boði eftir samkomulagiKannanir og forgangsröðun verkefna.
Í boði eftir samkomulagiÍþróttahús, salir, búnaður.
Í boði eftir samkomulagiVefur, skjalakerfi, þjónustugátt.
Í boði eftir samkomulagi
Forritun. Smíðar appið og stjórnborðið og heldur því gangandi.
Hönnun. Útlit appsins, efni og samskipti við sveitarfélagið.
Markaðsdeildin, Reyðarfirði. Hugbúnaðar- og markaðsstofa í Fjarðabyggð, í eigu Heimis og Árna.
Sveitarfélagið. Allt efni og allar ábendingar eru eign þess, og við skilum þeim við samningslok.
Umfang og verð eru sniðin að hverju sveitarfélagi og við sendum tilboð eftir fyrsta samtal. Flest sveitarfélög hafa afgreitt sambærileg verkefni með ákvörðun í bæjarráði.
Sex mánaða uppsagnarfrestur, gagnaskil, appið tekið úr verslunum á umsömdum degi.
Tilkynningar, borða, ýtitilkynningar og ábendingar afgreiðið þið úr stjórnborðinu. Opnunartíma og tímatöflur uppfærum við fyrir ykkur, eða þið sjálf ef þið viljið.
Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Fleiri tungumál eftir samkomulagi.
Já. Appið er það sama hvort sem íbúar eru 800 eða 8.000, og minni sveitarfélög hafa oft mest að vinna því þjónustuverið er einn maður.
Við. Reikningar, útgáfur, uppfærslur, reglubreytingar verslananna.
Viðbótarvinna er á tímagjaldi eða í sameiginlegri þróunaráætlun, alltaf með skriflegri áætlun fyrirfram.
Sendu okkur línu og við sýnum þér hvernig appið lítur út fyrir ykkar sveitarfélag. Engin skuldbinding, við byrjum á góðu samtali.
Beint til Árna: 861 1302, arnimar@markadsdeildin.is